Síðast uppfærð: 15. september 2024
Fiskmarkaðurinn ehf., (einnig vísað til „félagsins,“ „við“ eða „okkar“) rekur vefinn uppi.is (hér eftir nefndur „vefurinn“). Við tökum alvarlega þær skyldur sem fylgja persónuvernd og öryggi persónuupplýsinga og meðhöndlum þær persónuupplýsingar sem okkur berast í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Í persónuverndarstefnu þessari förum við yfir hvaða upplýsingar við skráum, með hvaða hætti og í hvaða tilgangi.
Fiskmarkaðurinn ehf., kt. 6407032370 er ábyrgðaraðili að vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru félaginu. Persónuverndarstefna þessi gildir um þá vinnslu sem félagið hefur með höndum um þá einstaklinga sem eiga í samskiptum við félagið vegna þeirrar þjónustu sem kynnt er á uppi.is.
Vefurinn
Vefurinn er heimasíða félagsins á slóðinni uppi.is
Persónuupplýsingar
Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar, þ.e. upplýsingar sem rekja má beint eða óbeint til tiltekins einstaklings, svo sem tilvísun í auðkenni eins og nafn og kennitölu, staðsetningargögn, netauðkenni eða fleiri þætti sem einkenna hann í líkamlegu, lífeðlisfræðilegu, erfðafræðilegu, andlegu, efnalegu, menningarlegu eða félagslegu tilliti.
Tæknilegar upplýsingar
Notkunargögn eru skráð sjálfkrafa þegar þú heimsækir vefinn okkar (t.d. IP-tala og tölfræðigögn). Við tengjum þessi gögn aldrei við persónuupplýsingar þínar.
Vafrakökur
Vafrakökur (cookies) eru upplýsingaforrit sem vafraforrit vista á notendatölvum og snjalltækjum. Þær hafa ákveðið gildistímabil og renna út af því loknu.
Ábyrgðaraðili
Einstaklingur, lögaðili, stjórnvald eða annar aðili sem ákveður einn eða í samvinnu við aðra tilgang og aðferðir við vinnslu persónuupplýsinga. Fiskmarkaðurinn ehf. er ábyrgðaraðili fyrir þeirri vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við þjónustu félagsins.
Vinnsluaðili
Einstaklingur eða lögaðili, stjórnvald eða annar aðili sem vinnur með persónuupplýsingar á vegum ábyrgðaraðila. Við kunnum að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila sem uppfyllir öll skilyrði) sé um að ræða þjónustuaðila.
Vinnsla
Vinnsla persónuupplýsinga vísar til aðgerðar eða röð aðgerða þar sem persónuupplýsingar er unnar, hvort sem vinnslan er sjálfvirk eða ekki.
Skráður einstaklingur (eða „hinn skráði“)
Einstaklingur eða tengiliður lögaðila, sem á í samskiptum við okkur vegna þjónustu.
Við söfnum og varðveitum ýmsar persónuupplýsingar í mismunandi tilgangi, meðal annars til að veita umbeðna þjónustu og bæta heimasíðuna og þjónustuna.
Upplýsingar sem við söfnum
Persónu- og samskiptaupplýsingar
Þegar þú átt í samskiptum við okkur í gegnum heimasíðuna eða tölvupóst, þá skráum við persónuupplýsingar svo við getum haft samband við þig og/eða auðkennt þig („hinn skráði“) og veitt umbeðna þjónustu. Þær persónuupplýsingar geta meðal annars verið:
Persónuupplýsingum er safnað beint frá viðskiptavinum. Til dæmis þegar viðskiptavinir afhenda Fiskmarkaðnum upplýsingar í tengslum við veitta þjónustu og þegar viðskiptavinir hafa samband við Fiskmarkaðinn.
Tæknilegar upplýsingar
Þegar þú heimsækir vefinn okkar þá söfnum við gögnum sjálfkrafa sem fela í sér tæknilegar upplýsingar varðandi þann búnað sem þú tengist með og hvernig þú ferðast um vefinn. Þessi gögn geta innihaldið IP-tölu, tegund vafra, síðurnar sem þú skoðaðar, tíma og dagsetningu heimsóknar, tíma sem þú varðir á þessum síðum sem og aðrar upplýsingar. Við tengjum þessi gögn aldrei við persónuupplýsingar þínar.
Vafrakökur
Vafrakökur (cookies) eru upplýsingaforrit sem vafraforrit vista á notendatölvum og snjalltækjum. Þær hafa ákveðið gildistímabil og renna út af því loknu. Vafrakökur geta geymt upplýsingar um tölfræði og stillingar notanda svo dæmi sé tekið.
Dæmi um vafrakökur sem við notum:
Í samræmi við gildandi lög óskum við eftir leyfi frá þér til að nota vafrakökur. Við gerum þér einnig auðvelt að skipta um skoðun hvenær sem er, með aðgengi að friðhelgisstillingum. Þar getur þú slökkt á þeim vafrakökum sem eru ekki nauðsynlegar til að vefurinn virki eðlilega.
Við varðveitum persónuupplýsingar á öruggan hátt og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Við varðveitum persónuupplýsingar um viðskiptavini innan EES-svæðisins.
Við geymum gögn eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu eins og lýst er í þessari persónuverndarstefnu. Bókhaldsgögn í tengslum við þjónustu Fiskmarkaðsins til viðskiptavina eru varðveitt í samræmi við lög um bókhald nr. 145/1994, en samkvæmt þeim ber að varðveita bókhaldsgögn í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs.
Félagið kann að miðla persónuupplýsingum til eftirfarandi aðila:
Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga og notum til þess viðurkenndar aðferðir. Þrátt fyrir það er mikilvægt að vita að engin aðferð við að senda gögn um Internetið eða aðferð við rafræna geymslu er 100% örugg.
Þú nýtur ýmiskonar réttinda samkvæmt lögum í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga, þó með nokkrum takmörkunum og undantekningum í gildandi lögum og reglum. Réttindi þín eru meðal annars eftirfarandi:
Til að fyrirbyggja að rétturinn hér að ofan verði misnotaður, áskiljum við okkur rétt til að fara fram á að þú sýnir fram á auðkenni áður en erindið er afgreitt. Ef þú vilt nýta þér ofangreindan rétt, þá vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á [email protected].
Vefurinn okkar kann að innihalda vísanir í og frá vefsíðum samstarfsaðila og annarra þriðju aðila. Vinsamlegast athugið að um þær vefsíður gilda aðrar persónuverndarreglur sem við hvorki höfum stjórn á né berum ábyrgð á. Við hvetjum þig því til að kynna þér þær reglur vandlega áður en þú sendir persónuupplýsingar í gegnum þær vefsíður.
Við áskiljum okkur rétt til þess að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi persónuverndarstefnu þessa, þá vinsamlegast hafðu samband á [email protected].